JUSTUM - MANNAUÐUR

Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir lögmaður

Stofnandi og eigandi

Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir

Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir hefur starfað við lögfræðiráðgjöf í yfir 10 ár, eða frá árinu 2016. Hún hefur víðtæka reynslu af lögmannsstörfum, málarekstri og hagsmunagæslu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og opinbera aðila.

Dagný lauk BA-prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2016 og mag. jur. prófi í lögfræði frá sama skóla árið 2018. Hún öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum árið 2019.

Árið 2015 var hún meðhöfundur kennslurits í nábýlisrétti ásamt Helga Áss Grétarssyni o.fl. Ritið var meðal annars notað við kennslu í Eignarétti í lagadeild Háskóla Íslands og í námi til löggildingar fasteignasala. Dagný gegndi jafnframt störfum aðstoðarkennara í eignarétti við lagadeild Háskóla Íslands árið 2016.

Hún hefur umfangsmikla reynslu af rekstri slysabótamála, þar sem hún hefur gætt hagsmuna einstaklinga gagnvart tryggingafélögum og öðrum bótaskyldum aðilum í yfir áratug.

Í störfum sínum hefur hún einnig öðlast víðtæka reynslu og þekkingu á sviði stjórnsýsluréttar, refsiréttar, fjölskyldu- og erfðaréttar, skiptaréttar, fasteignakauparéttar o.fl.

Starfsferill

  • SIF Lögmenn
    Stofnandi, eigandi og lögmaður
  • JUSTUM – Innheimta slysabóta
    Stofnandi, eigandi og lögmaður
  • Lögmenn Suðurlandi og Integrum frá 2016 til 2026
    Fulltrúi, héraðsdómslögmaður og deildarstjóri bótamála
  • Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar frá 2022
    Bæjarfulltrúi fyrir Okkar Hveragerði, óháð bæjarmálafélag
  • Bæjarráð Hveragerðisbæjar frá 2022
    Formaður, varaformaður og almennur fulltrúi á tímabilinu
  • Lagadeild Háskóla Íslands 2016
    Aðstoðarkennari í Eignarétti I

Önnur stjórnar-, nefnda- og trúnaðarstörf

Samstarfsverkefni sveitarfélaga á Suðurlandi

  • Sorpstöð Suðurlands bs. frá 2022 til 2026
    Stjórnarmaður, ritari stjórnar og fulltrúi á aðalfundum
  • Byggðasafn Árnesinga frá 2022 til 2026
    Varamaður í stjórn, fulltrúi á aðalfundum
  • Heilbrigðiseftirlit Suðurlands frá 2022 til 2026
    Varamaður í Heilbrigðisnefnd Suðurlands og fulltrúi á aðalfundum
  • Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, Bergrisinn bs., Héraðsnefnd Árnesinga bs. og tengd byggðasamlög, Eignarhaldsfélag Suðurlands hf. og Háskólafélag Suðurlands ehf. o.fl. frá 2022
    Fulltrúi á aðalfundum

Nefnda- og stjórnarstörf hjá Hveragerðisbæ

  • Ýmsar fastanefndir Hveragerðisbæjar frá 2022
    Fulltrúi, formennska/varaformennska, m.a. í skipulags- og umhverfisnefnd, eignasjóði, skólanefnd, menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd, samráðshóp um málefni fatlaðs fólks o.fl.
  • Fasteignafélag Hveragerðis ehf. frá 2022 til 2026
    Varamaður í stjórn

Önnur stjórnar- og trúnaðarstörf

  • Viðreisn í Árnessýslu frá 2021 til 2024
    Stjórnarmaður og varaformaður
  • Viðreisn, 2021 og 2024
    Frambjóðandi flokksins í Suðurkjördæmi til Alþingis