Við réttum þinn hlut
fyrir þig og þína framtíð
Engar bætur, engin þóknun
Umferðarslys
Ef þú slasast í umferðarslysi getur þú átt rétt á skaðabótum, hvort sem þú varst í rétti eða órétti. Mikilvægt er að leita réttar síns þótt tjón kunni að virðast smávægilegt í fyrstu. Við aðstoðum þig við mat á bótarétti, gagnaöflun, samskipti við tryggingafélög og eftirfylgni krafna vegna umferðarslysa.
Vinnuslys
Ef þú slasast í vinnuslysi getur þú átt rétt á greiðslu bóta úr slysatryggingu launþega. Einnig getur verið fyrir hendi réttur til bóta úr ábyrgðartryggingu vinnuveitanda, t.d. ef ekki hefur verið tryggt viðunandi öryggi á vinnustað. Við gætum þinna réttinda og aðstoðum þig við samskipti við tryggingafélög, gagnaöflun og innheimtu bóta.
Frítímaslys
Ýmsar tryggingar, svo sem heimilistryggingar, taka til slysa sem verða í frítíma og fer réttur til bóta eftir skilmálum hverrar tryggingar fyrir sig. Þá getur tjón vegna frítímaslyss fallið undir slysatryggingu launþega í ákveðnum tilfellum. Einnig tíðkast víða að sveitar- og íþróttafélög kaupi slysatryggingar fyrir börn í skóla- eða tómstundastarfi á þeirra vegum. Við aðstoðum við mat á bótarétti þínum og aðstoð við samskipti við tryggingafélög, gagnaöflun og eftirfylgni bótakrafna.
Íþróttaslys
Víða hafa íþróttafélög keypt slysatryggingar fyrir iðkendur sína sem tryggir rétt til bóta vegna slysa á æfingum eða við keppni á vegum þeirra. Réttur til bóta fer eftir skilmálum viðkomandi tryggingar. Við gætum þinna hagsmuna, veitum ráðgjöf við mat á bótarétti þínum, aðstoðum við samskipti við tryggingafélög, gagnaöflun og innheimtu bóta.
Sjúklingatjón
Hafirðu orðið fyrir tjóni við meðferð eða rannsóknir í heilbrigðisþjónustu átt þú mögulega rétt á bótum úr sjúklingatryggingu, svo sem vegna fylgikvilla meðferðar. Einnig getur verið til staðar réttur til bóta úr ábyrgðartryggingu viðkomandi læknis hafi t.d. átt sér stað mistök við veitingu meðferðar. Við gætum þinna réttinda vegna mögulegs tjóns vegna meðferðar innan heilbrigðiskerfisins og aðstoðum við framsetningu og eftirfylgni bótakrafna.
Tryggingamál
Yfirferð bótaákvarðana og aðstoð þegar ágreiningur kemur upp við tryggingafélög.
Skaðabótakröfur
Undirbúningur, framsetning og eftirfylgni bótakrafna, þar með talið vegna líkamsárásar eða annarra brota gegn almennum hegningarlögum.